ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Sóttur af Jóni Ásgeiri

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:19 › 11. júlí 2009
Þorsteinn Már Baldvinsson

Þorsteinn Már Baldvinsson

Þorsteinn Már Baldvinsson er einn af þeim sem DV valdi í hópinn 20 stærstu útrásarvíkingarnir. Þosteinn keypti í félagi við frændur sína, Þorstein og Kristján Vilhelmssyni, nær allt hlutafé í Samherja hf. árið 1983. Þorsteinn hefur verið forstjóri félagsins allar götur síðan.

Utan Íslands er Samherji með starfsemi í Þýskalandi, Póllandi, Bretlandi, Máritaníu, Marokkó og Færeyjum. Eftir að hafa byggt Samherja upp sem alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki og auðgast mikið færði hann sig, líkt og aðrir sægreifar, út í fjármálastarfsemi.

Í febrúar árið 2008 varð Þorsteinn Már stjórnarformaður Glitnis. Hann var ráðinn faglegur stjórnarformaður að ósk stærsta hluthafans FL Group og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Hann byrjaði á því að taka til í rekstri bankans með því að lækka laun stjórnarmanna umtalsvert. Hann gaf það einnig út að í sinni stjórnartíð yrðu ekki gerðir frekari starfslokasamningar.

Blaðið Sirkus mat eignir hans á 25 milljarða króna árið 2007.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.