ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Segir ráðherra fagna bruna Valhallar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:07 › 11. júlí 2009
Fyrrverandi þingmaður ber Össur þeim sökum að hann fagni brunanum á Þingvöllum.

Fyrrverandi þingmaður ber Össur þeim sökum að hann fagni brunanum á Þingvöllum.

,,Það eiga allir menn sína hamingjudaga og margt sem bendir til að Össur Skarphéðinsson hafi verið á hátindi síns ferils í gær, föstudaginn 10. júlí en þá gerðist það tvennt sem ráðherrann hefur lengi dreymt að verði að veruleika. Valhöll á Þingvöllum brann til grunna og Alþingi Íslendinga tók til umfjöllunar tillögu sem miðar að því að leggja af sjálfstætt þjóðríki á Íslandi," segir Bjarni Harðarson, fyrrverandi alþingismaður Framsóknarflokksins, á bloggi sínu. Bjarni hefur átt sæti í Þingvallanefnd ásamt Össuri og segist hafa þurft að verja Valhöll meðp kjafti og klóm. .
,,Sjálfur lenti ég í mjög svo svæsnu orðaskaki við ráðherrann þegar ég fyrir tveimur árum lagðist gegn sameiginlegum fyrirætlunum Össurar og Kristjáns Einarssonar slökkviliðsstjóra að rífa hús þetta en Össur vildi á þeim tíma byggja í stað hótels fyrir almenning nýmóðins ráðstefnusal fyrir Alþingi," segir Bjarni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.