ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Óverjandi gjaldmiðill

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
10:39 › 11. júlí 2009

Þingfundur hófst á Alþingi klukkan hálf ellefu í morgun. Nokkrir þingmenn hafa látið í ljós óánægju með að þinghald skuli standa fram eftir föstudagskvöldi um miðjan júlí og haldið áfram á laugardegi. Til umræðu er aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Stjórnvöld vonast til þess að geta lagt inn umsókn fyrir næstu mánaðamót.

Formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd treysta sér ekki til að styðja tillögu stjórnarliða um aðildarumsókn. Siv Friðleifsdóttir og Guðmundur Steingrímsson hafa þó lýst stuðningi við hana. Ekki er ljóst hvort andstaða Sjálfstæðisflokksins nær til allra þingmanna flokksins. Nokkrir þingmanna VG eru andvígir aðildarumsókn og hallast að tillögu Bjarna Benediktssonar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, Sjálfstæðisflokki, um að fyrst beri að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sækja eigi um aðild að ESB.

Helgi Hjörvar, Samfylkingunni, sagði í ræðustól fyrir stundu að það hafi sýnt sig að ekki sé hægt að reka íslensku krónuna. Þjóð sem telji aðeins 0,3 milljónir manna geti ekki varið svo lítinn gjaldmiðil. Íslenskur almenningur sé nú að súpa seiðið af því. Bæði innlendir og erlendir aðilar hafi tekið stöðu gegn krónunni og hagnast um tugi milljarða króna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.