Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur segir ævilanga vinnu bíða konunnar sem varð fyrir hrottalegu ofbeldi af hálfu sambýlismanns síns um langt skeið. Ofbeldismaðurinn hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir barsmíðar og fyrir að hafa neytt konuna til kynlífsathafna með 11 öðrum mönnum. Réttargæslumaður konunnar segir hana ánægða með það hvernig réttarkerfið tók á máli hennar.
„Ég þekki ekki bakgrunn þessarar konu en það getur verið erfitt fyrir hana að eiga venjuleg dagleg samskipti við fólk eftir að hafa orðið fyrir svona grófu ofbeldi,“ segir Kolbrún, beðin um að leggja mat á þau áhrif sem hrottalegt ofbeldi og ítrekaðar nauðganir geta haft á fólk til lengri tíma.
Karlmaður, fæddur árið 1972, var í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudaginn dæmdur í 8 ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir fjölmargar árásir og og fimmtán alvarleg kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni. Maðurinn er háskólamenntaður og hefur tekið þátt í opinberri umræðu þar sem hann hefur meðal annars látið sig varða hagsmuni barna og fjölskyldna. Hann neyddi konuna til að hafa samræði og önnur kynferðismök við ellefu aðra karlmenn. Kynlífsathafnirnar átti hann svo til að ljósmynda eða taka upp á myndbönd. Konan vill ekki að maðurinn verði nafngreindur í fjölmiðlum og virðir DV þá ósk hennar.
Nánar í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun