ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Kúlukóngarnir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:17 › 11. júlí 2009
Hreiðar Már og Sigurður taka við útflutningsverðlaunum Íslands af Ólafi Ragnari árið 2005.

Hreiðar Már og Sigurður taka við útflutningsverðlaunum Íslands af Ólafi Ragnari árið 2005. Heimasíða Kaupþings

DV valdi þá Sigurð Einarsson og Hreiða Má Sigurðsson í hóp 20 stærstu útrásarvíkinganna eins og kemur fram í helgarblaði DV. Kaupþing var stofnað árið 1982 og var Pétur Blöndal alþingismaður einn af stofnendunum. Árið 1994 gengu Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson til liðs við Kaupþing en þá var Bjarni Ármannsson þar fyrir.

Hreiðar byrjaði hjá Kaupþingi daginn eftir að hann kláraði síðasta prófið í viðskiptafræði, þá 23 ára gamall. Sigurður varð forstjóri árið 1996 en Hreiðar Már tók við af honum árið 2003. Þá gerðist Sigurður stjórnarformaður.

Árið 2000 var Kaupþing skráð í Kauphöllina. Kaupþing var fyrsta íslenska fjármálastofnunin til að opna fjármálafyrirtæki erlendis og var það í Lúxemborg árið 1998 undir nafninu Kaupþing Luxembourg S.A. Árið 2000 opnaði Kaupþing skrifstofu í New York.

Árið 2004 keypti Kaupþing danska bankann FIH á 84 milljarða íslenskra króna. Árið 2005 yfirtók Kaupþing breska bankann Singer & Friedlander. Yfirtökutilboðið var 53 milljarðar íslenskra króna en fyrir átti bankinn 19 prósenta hlut sem metinn var á 12 milljarða króna.

Árið 2007 gerði Kaupþing 270 milljarða króna kauptilboð í hollenska bankann NIBC en ekkert varð af kaupunum. Árið 2007 átti Kaupþing um 20 prósenta hlut í norska tryggingafyrirtækinu Storebrand sem þá var metinn á um 40 milljarða íslenskra króna.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.