ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Keypti Sterling tvisvar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:39 › 11. júlí 2009
Pálmi Haraldsson

Pálmi Haraldsson

Pálmi Haraldsson flokkast tvímælalaust undir það að vera einn af 20 stærstu útrásarvíkingum Íslands. Pálmi og Jóhannes Kristinsson áttu félagið Fons sem nýverið óskaði eftir gjaldþrotaskiptum.

Eitt helsta afrek Fons var að kaupa danska flugfélagið Sterling á fjóra milljarða króna og selja FL Group það sex mánuðum síðar á 15 milljarða króna. Síðan keypti Fons aftur Sterling af FL Group ári síðar á 20 milljarða króna.

Skuldir Fons eru taldar nema 20 milljörðum króna en eignir voru meðal annars fjórir milljarðar í handbæru fé. Jóhannes hefur að mestu haldið sig í Lúxemborg undanfarin ár.
Árið 2007 áætlaði blaðið Sirkus eignir Pálma á 40 milljarða króna. Eignir Jóhannesar voru þá metnar á 30 milljarða króna. Ekki liggur fyrir hvernig staða þeirra er í dag.

Pálmi flutti til Íslands árið 1991 til að taka við Sölufélagi garðyrkjumanna sem þá stóð höllum fæti. Var hann á þeim tíma að ljúka meistaranámi í rekstrarhagfræði frá Gautaborgarháskóla og var sérsvið hans í náminu endurreisn gjaldþrota fyrirtækja. Eins og frægt er orðið var félag Pálma dæmt fyrir grænmetissamráð árið 2001.

Félag hans Fengur sem rekur Iceland Express hefur ekki verið úrskurðað gjaldþrota en það hefur ekki skilað ársreikningi í fjögur ár.
Í ágúst 2008 seldi Fons eignir fyrir 100 milljarða króna. Inni í því var sala á hlut félagsins í Iceland-keðjunni í Bretlandi og var hagnaður félagsins vegna þeirrar sölu sagður vera 77 milljarðar króna.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.