Sigurjón Þ. Árnason var einn þeirra sem DV valdi í flokkinn 20 stærstu útrásarvíkingarnir í helgarblaðið.
Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, verður tvímælalaust einna helst minnst í Íslandssögunni sem arkitektsins að hinum alræmdu Icesave-reikningum.
Þegar Icesave-reikningarnir þóttu ganga sem best í Bretlandi sagði Sigurjón hróðugur að þeir væru „tær snilld“.
Sigurjón var ekki stórtækur í fjárfestingum á dögum góðærisins, svo vitað sé, en hann telst vera útrásarvíkingur því hann stjórnaði útrás Landsbankans í Evrópu, meðal annars með Icesave-reikningunum.
Markmið bankans var svo að mergsjúga alla markaði með Icesave-snilldinni.
Frá efnahagshruninu hefur Sigurjón unnið sem fjármálaráðgjafi og kennt fjármálaverkfræði í Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur mikið verið í umræðunni á þeim tíma, meðal annars fyrir að láta mágkonu sína leppa fyrir sig kaup á lúxusbílnum sem hann hafði afnot af meðan hann var bankastjóri og fyrir að taka lán í eigin lífeyrissparnaði.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir