ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Hrottalegt morð á frönskum gyðingi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:38 › 11. júlí 2009
Ilan Halimi áður en hann var myrtur 23 ára að aldri.

Ilan Halimi áður en hann var myrtur 23 ára að aldri.

Leiðtogi klíku sem stóð að baki morði á hinum 23 ára gamla gyðingi Ilan Halimi í París var dæmdur í lífstíðarfangelsi á föstudag.

Leiðtogi klíkunnar Youssouf Fofan var einn af 27 sem voru grunaðir um að hafa tekið þátt í því í upphafi árs 2006 að taka gyðinginn og símasalann Ilan Halimi og myrða hann. Fyrir dómi sagði Fofan að allir gyðingar ættu peninga og því hafi hann ætlað að taka lausafé af Halimi.

Halimi var haldið í þrjár vikur þar sem hann var barinn, stunginn og brenndur með sígarettum. Að lokum var honum komið fyrir á lestarteinum en hann lést í sjúkrabíl á leiðinni á sjúkrahús.

Meðan honum var haldið sendu meðlimir klíkunnar myndir til fjölskyldu Halimi og kröfðust 450 þúsund evra í lausnargjald eða um 80 milljón króna miðað við núverandi gengi.

Tveir aðrir í klíkunni fengu 15 ára og 18 ára fangelsi. Stelpan sem hafði lokkað Halimi niður í kjallara fékk níu ára fangelsi. Morðið á Halimi kom af stað miklum átökum í Frakklandi þar sem lögreglan ætlaði í fyrstu að neita að taka málið fyrir sem kynþáttahatursmál.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.