Helgarblað DV leitaði til yfir 20 álitsgjafa víðs vegar úr samfélaginu í leit að gáfaðasta Íslendingnum. Konur röðuðust í efstu sætin en það er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sem hlýtur titilinn gáfaðasti Íslendingurinn.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands
„Minnist þess aldrei að hafa heyrt hana segja einhverja vitleysu. Legg alltaf við hlustir þegar hún talar og hún leggur ætíð eitthvað til málanna sem vekur mig til umhugsunar. Hún er djúpvitur, já, og svo mikil manneskja.“
„Hefur allar tegundir greindar á tæru: Tilfinningagreind, rýmisgreind, tungumálagreind. Hún hefur þetta allt og fer vel með sínar gáfur og er öðrum fyrirmynd og hvatning.“
„Óaðfinnanlegur forseti.“
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra
„Fyrirmyndarnemandi, gáfuð um alla hluti milli himins og jarðar. Rúllaði upp stúdentsprófinu í MS með hæstu einkunn sem gefin hefur verið þar. Frábær manneskja og greind.“
„Ung og kemur til dyranna eins og hún er klædd. Snobbar ekki fyrir neinum, kemst áfram á eigin verðleikum. Rökföst, skynsöm og það geislar af henni. Alveg augljóst þegar hún talar að þarna fer afar vel gefinn einstaklingur.“
Vigdís, Katrín og allir hinir gáfuðu Íslendingarnir í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun