ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Sýndi barnungum nemendum sínum klám

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:27 › 10. júlí 2009
Kennarinn gerði þau mistök að sýna börnunum klámmyndband. Ævareiðir foreldrar vilja að hann verði rekinn.

Kennarinn gerði þau mistök að sýna börnunum klámmyndband. Ævareiðir foreldrar vilja að hann verði rekinn. Mynd Photos

Kennari við barnaskóla í Vestur-Sussex hefur fengið viðvörun eftir að hann, fyrir slysni, sýndi átta og níu ára gömlum nemendum sínum klámmyndband í tíma. Kennarinn var að halda fyrirlestur þegar atvikið varð og brá nemendum hans mikið.

Þegar hann áttaði sig á því hvað var á skjánum fyrir framan allan bekkinn slökkti hann umsvifalaust á tölvunni. Að sögn skólayfirvalda fór kennarinn með tölvuna heim til sín og virðist hafa notað hana þar í þeim tilgangi að skoða klámmyndbönd.

Um er að ræða einkaskóla og þurfa foreldrar barna að greiða yfir eina milljón króna fyrir skólaárið. Foreldrar hafa krafist þess að kennaranum verði vikið frá störfum en skólayfirvöld hafa þó aðeins áminnt hann. „Við borguðum ekki hundruð þúsunda til að börnin okkar fengju fróðleik um klám,“ segir eitt foreldrið í samtali við Telegraph.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.