ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Stímfeðgar flakka á milli kennitalna

08:19 › 10. júlí 2009
Bolvíska skipið Þorlákur er komið með nýja kennitölu. Sú gamla hefur verið send til Reykjavíkur.

Bolvíska skipið Þorlákur er komið með nýja kennitölu. Sú gamla hefur verið send til Reykjavíkur.

Feðgarnir Jakob Valgeir Flosason og Flosi Valgeir Jakobsson, útgerðarmenn frá Bolungarvík, hafa skipt um kennitölu á fyrirtæki sínu með samþykki viðskiptabanka þeirra, Íslandsbanka og Landsbankans. Feðgarnir tóku þátt í Stím-ævintýrinu. Jakob segir að með því að skipta um kennitölu ætli feðgarnir sér að flýja skuldir og ábyrgðir sem hvíla á gömlu kennitölunni. Hann segir að með þessu bjargi þeir helstu eign fyrirtækisins, skipinu Þorláki, og 40 prósentum kvótans sem skráður er á hann. Tengist ekki Stím, segir Jakob.

Já, já, við fengum bara samþykki frá bönkunum til að færa þetta yfir á aðra kennitölu. Þeir voru bara með í þessu,“ segir Jakob og bætir því við að með þessu hafi þeir viljað tryggja áframhaldandi rekstur útgerðarfyrirtækisins og aðgreina hann frá fjárfestingahlutanum.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.