ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Hrepparígur og Jackson

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:04 › 10. júlí 2009
Uppistandshópurinn Mið-Ísland. Ari Eldjárn, Árni Vill, Dóri DNA, Bergur Ebbi og Jóhann Alfreð.

Uppistandshópurinn Mið-Ísland. Ari Eldjárn, Árni Vill, Dóri DNA, Bergur Ebbi og Jóhann Alfreð.

„Það verður talað um hrepparíg, Michael Jackson, muninn á Reykjavík og Akureyri, listir og margt fleira,“ segir Bergur Ebbi, uppistandari og söngvari Sprengjuhallarinnar, um Hláturkvöld sem hópurinn Mið-Ísland stendur fyrir á Akureyri um helgina.

Mið-Ísland er ungur og ferskur hópur uppistandara sem eru allir að stíga sín fyrstu skref í bransanum en hafa þegar getið sér mjög gott orð. Auk Bergs skipa hópinn Dóri DNA, Árni Vill, Jóhann Alfreð og Ari Eldjárn.

„Þetta er í fyrsta skipti sem við komum fram utan Reykjavíkur og það verður því spennandi að koma fram fyrir annan hóp af fólki.“ Bergur segir það skemmtilega tilhugsun að fara með félögunum út á land í „grín-mission“ þótt honum finnist jafnvel vafasöm pæling að eitthvað sé auglýst fyrir fram fyndið. „Þarna verða menn að segja brandara en þetta veltur líka mikið á því hvernig stemning skapast og að fólk sé í stuði.“

Á móti sól og Ingó og Veðurguðirnir annars vegar og Egó og Paparnir hins vegar eru með ball fyrir norðan um helgina. „Það er varla til betri byrjun á góðu djammi en að fara á uppistand,“ segir Bergur og hvetur Norðlendinga til að mæta í Ketilhúsið klukkan 21.00 á laugardaginn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.