Hótel Valhöll varð eldinum að bráð í dag. Það sem eftir stendur verður rifið á morgun. Mynd Rakel Ósk
„Það loga enn glæður en það er ekki mikill eldur eftir í húsinu,“ segir Snorri Baldursson, aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu. Eins og greint hefur verið frá gjöreyðilagðist Hótel Valhöll í eldsvoða í dag. Að sögn Snorra verður þekjan á síðasta hluta Hótel Valhallar brotin niður í kvöld til að slökkva í glæðum sem þar loga enn.
Snorri segir að það sem eftir standi verði líklega rifið niður í fyrramálið. Aðspurður hversu lengi slökkviliðið verði að störfum segir Snorri að líklega verði það að minnsta kosti fram yfir miðnætti. Fimm dælubílar slökkviliðsins eru enn á vettvangi og einn körfubíll.
Aðspurður hvort eitthvað heillegt sé að finna í rústum Hótels Valhallar segir Snorri að það sé ákaflega lítið. Þó hafi tekist að bjarga einhverjum málverkum og fólk sem var í gistingu á hótelinu hafi endurheimt eitthvað af sínum persónulegu munum.
Allar líkur eru á því að eldurinn hafi komið upp í eldhúsinu og eldurinn náð að teygja sig í háf fyrir ofan eldavél í eldhúsinu. Þaðan hafi eldurinn borist í stokkinn og í þak hússins.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir