ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

4,5 milljónir fyrir of marga ketti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:26 › 10. júlí 2009
Konan tók ást sína á dýrum aðeins of alvarlega.

Konan tók ást sína á dýrum aðeins of alvarlega. Mynd Photos

62 ára gamalli konu frá New Jersey í Bandarikjunum hefur verið gert að greiða 4,5 milljónir króna í sekt fyrir að hafa 150 ketti í glæsihýsi sínu. Var konan ákærð fyrir brot gegn dýraverndunarlögum en konan gat ekki hugsað nægjanlega vel um alla kettina.

Þá má konan, Wanda Oughton að nafni, ekki eiga meira en sex ketti næstu þrjú árin. Það var í mars á þessu ári sem yfirvöld fóru inn í íbúð konunnar og var aðkoman vægast sagt skelfileg. Lögfræðingur Oughton segir að ástæðan fyrir þessu mikla kattahaldi hafi verið sú, að hún elski dýr.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.