Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi telja það ljóst að lög um opinber innkaup hafi verið brotin í viðskiptum Kópavogsbæjar við fyrirtækið Frjáls miðlun, sem er í eigu dóttur Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi. Þeir krefjast þess að Gunnar víki sem bæjarstjóri.
„Kópavogsbær virðist vera aðal viðskiptavinur fyrirtækisins og eðli viðskiptanna eru óljós. Skýrsla Deloitte staðfestir því grun okkar að um óeðlileg viðskipti hafi verið að ræða og um leið hafi verið farið illa með almennafé. Við teljum því einsýnt að fyrirtæki í eigu dóttur bæjarstjóra Kópavogs, hafi notið tengsla sinna. Við teljum bæjarstjóra Kópavogs hafa brugðist trausti bæjarbúa og hann eigi því að víkja,“ segir í yfirlýsingu frá Guðríði Arnardóttur og Hafsteini Karlssyni.
Málið komst í hámæli eftir umfjöllun DV um viðskiptin í vor.
Í skýrslu Deloitte segir að almennt virðist ekki hafa verið gerðar verðkannanir eða leitað tilboða í verkefni sem fyrirtækið hefur unnið fyrir Kópavogsbæ. Viðskiptin eru því hugsanlega brot á lögum um opinber innkaup þar sem ekki er gerður hagkvæmnissamanburður eins og skal gera samkvæmt lögum.
Þá virðst reikningar frá fyrirtækinu í mörgum tilfellum hafa verið bókaðir á ranga bókhaldslykla í fjárhagsbókhaldi. almennt hafa ekki verið gerðir skriflegir verkasamningar vegna verkefnanna.
Þá virðist sem reikningar frá Frjálsri Miðlun fullnægi ekki skilyðrum virðisaukaskattslaga um sundurliðun upplýsinga.
Athygli Deloitte vekur að frá mars 2005 hefur bærinn greitt 6 reikninga frá Frjálsri Miðlun vegna afmælisrits Kópavogsbæjar. Verkefninu virðist ekki hafa verið lokið og ekki liggja aðrar afurðir en drögin að uppsetningu sem voru prentuð út 23. mars 2005.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir