ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Vill Icesave samning í þjóðaratkvæði

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:11 › 7. júní 2009
Ólafur Arnarson vill Icesave samninginn í þjóðaratkvæði.

Ólafur Arnarson vill Icesave samninginn í þjóðaratkvæði. Mynd DV

„Nú þarf þjóðin að rísa upp og krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave „samninginn“!,“ segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur og höfundur bókarinnar Sofandi að feigðarósi. Ólafur bendir á á bloggsíðu sinni að samningurinn feli í sér að hvert einasta mannsbarn sé skuldbundið til að greiða allt að þremur milljónum króna til breskra hollenskra innistæðueigenda, sem hafi látið glepjast af gylliboðum Landsbankans.

„Hvernig gat þetta gerst? Reglur ESB og EES um innistæðutryggingar voru meingallaðar og íslenskir stjórnmálamenn og eftirlitsaðilar sváfu á verðinum. Stjórnendur Landsbankans frömdu voðaverk með þegjandi samþykki stjórnvalda og eftirlitsaðila! Nú standa vonir til að eignir Landsbankans dugi fyrir miklu af Icesave skuldbindingunum. Ekkert er þar fast í hendi. Þetta byggir á því að neyðarlögin frá því í haust, sem mismuna kröfuhöfum gróflega, standist fyrir dómstólum,“ segir Ólafur.

Ólafur telur það öruggt að kröfuhafar, sem bera skarðan hlut frá borði vegna mismununar, láti reyna á rétt sinn fyrir dómstólum. Allsendis óvíst sé að dómstólar muni leyfa að allar eignir Landsbankans renni til að greiða greiða Icesave reikninginn. Ríkisstjórninn og samningamenn hennar séu að leika sér í fjárhættuspili og veðsetja þjóðina.

„Þjóðin, sem ríkisstjórnin vill að greiði reikninginn vegna gallaðra reglna í ESB, hlýtur að hafa síðasta orðið í þessu máli. Ef ekki er tilefni til að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu, þegar verið er að skuldbinda hvert einasta mannsbarn á Íslandi til að greiða allt að 2-3 milljónir króna – það eru 8-12 milljónir á hverja fjögurra manna fjölskyldu, þá hvenær?,“ spyr Ólafur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.