Tveir þingmenn vinstri grænna vilja ekki lýsa yfir stuðningi við Icesave samninganna, það eru þau Atli Gíslason og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Fréttastofa RÚV leitaði álita hjá þingmönnum flokksins og sögðust Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Ásmundur Einar Daðason, Björn Valur Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir ætla að styðja samkomulagið. Ekki náðist hinsvegar í Lilju Mósesdóttir og Þuríði Backman.
RÚV hefur eftir Atla Gíslasyni að hann hafi fyrirvara á samkomulaginu og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sagðist ætla að skoða málið vel og taka ákvörðun í framhaldi af því. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði á blaðamannafundi í gær, þar sem samkomulagið var kynnt, að hann gæti ekki lofað stuðningi allra þingmanna flokksins.
Töluverðrar óánægju virðist gæta með samninginn en eins og DV greindi frá í morgun hefur verið stofnaður Facebook hópur undir yfirskriftinni: „Við neitum að borga skuldir sem við berum ekki ábyrgð á!“. Rúmlega fimm þúsund manns hafa skráð sig í hópinn.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision