ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Þungvopnaðir dópsalar í átökum við herinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:15 › 7. júní 2009
Hermenn við öllu búnir í átökum við dópsala í gær.

Hermenn við öllu búnir í átökum við dópsala í gær. Mynd AFP

Átján manns, þar á meðal tveir hermenn, létu lífið í gær þegar skotbardagi braust út milli mexíkóska hersins og glæpahóps í bænum Acapulco í gær.

Í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti landsins segir að átökin hafi byrjað þegar hermenn hugðust fylgja eftir ábendingu um fíkniefnastarfsemi.

Níu hermenn særðust í átökunum en fimm voru handteknir eftir að herinn náði tökum á ástandinu. Glæpahópurinn virðist hafa verið við öllu búinn því lagt var hald á 49 skammbyssur, tvær léttar sprengjubyssur, þrettán handsprengjur og hátt í fjögur þúsund byssukúlur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.