„Fyrir mér hefur það nú ekki verið inni í myndinni að því verði viðkomið,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um hugsanlega þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icesave samninganna. Um fimm þúsund manns hafa skráð sig í Facebook hóp þar sem þess er krafist að þjóðin fái að hafa síðasta orðið um skuldbindingarnar vegna Icesave.
Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis og þingmaður Vinstri grænna, sagði í samtali við Vísi í dag að það komi til greina af sinni hálfu að samningurinn verði borinn undir þjóðaratkvæði. Hún styðji þó samkomulagið og muni ekki beita sér fyrir sérstakri þjóðaratkvæðagreiðlu um málið.
Steingrímur bendir á að ekki séu til lög um það hvernig þjóðaratkvæðagreiðslur eigi að fara fram. „Fyrrverandi Alþingi og væntanlega núverandi Alþingi munu þá bera ábyrgð á niðurstöðunni í þessu máli. Ég veit því ekki hvort því verði viðkomið í þessu tilviki,“ segir Steingrímur en hann tekur fram að hann hafi ekki velt möguleikanum um þjóðaratkvæðagreiðslu mikið fyrir sér.
Aðspurður hvort ekki væri eðlilegast að láta þjóðina greiða atkvæði um svo stóra skuldbindingu segir Steingrímur: „Jújú. En vel að merkja þá er það oftast þannig í löndum sem hafa lög um þjóðaratkvæðagreiðslur að það eru undanskilin viss mál sem framkvæmdavaldið verður að bera ábyrgð á eins og fjárlög, af því það er almennt ekki talið mögulegt fyrir stjórnvöld að bera slík mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það þarf alltaf að huga að því hvers eðlis málin eru [...] Ég sé ekki annað en að ríkisstjórn og Alþingi verði að axla ábyrgð á því að klára þetta mál eins og til þess var stofnað og ákveðið var á Alþingi í vetur.“





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“