Lögreglan í Mesa í Arizona-fylki var kölluð að móteli í bænum þar sem ung kona hafði misst fóstur og þurfti á læknisaðstoð að halda. Lögreglumennirnir brugðu á það ráð að fara með fóstrið inn á baðherbergi og sturta því niður. Þeir hafa verið leystir frá störfum á meðan málið er í rannsókn.
„Lögreglumaður ætti aldrei að gera það sem hann gerði í þessu tilviki. Fóstrið hefði getað verið hluti af hugsanlegum glæpavettvangi,“ segir Ed Wessing hjá lögreglunni í Mesa í samtali við Sky fréttastofuna.
Sá sem hringdi á lögregluna er hinn 48 ára Allen Coleman og hann sýndi lögreglumönnunum fóstrið sem var pakkað inn í bréfþurrkur. Í mótel herberginu voru líka blóðug handklæði og rúmföt. Coleman þessi var handtekinn á staðnum grunaður um fíkniefnamisferli.
Kærasta Colemans, hin 24 ára Raeann Bell, gæti hafa misst fóstrið vegna fíkniefnanotkunar.
„Við vitum ekki hvað olli fósturlátinu. Það gæti hafa verið vegna fíkniefnanotkunar eða annars glæpsamlegs athæfis,“ segir Wessing.





Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu