Steingrímur J. er í raun tveir menn
Steingrímur situr sem helsti hershöfðingi valdstjórnarinnar að mati Jóns.
“Gamall vinur Steingríms J. Sigfússonar sagði við mig fyrir nokkru að Steingrímur J. Sigfússon væri í raun tveir menn. Steingrímur í stjórnarandstöðu og Steingrímur í ríkisstjórn. Á þessum tveim mönnum sagði þessi gamli vinur Steingríms er meiri munur en á Dr. Jekyll og Mr. Hyde í skáldsögunni forðum.“ Þetta skrifar Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrum alþingismaður, á heimasíðu sína.
Jón lýsir stjórnmálaumræðunni í dag við leikhús fáránleikans og gagnrýnir framgöngu Steingríms J. í IceSave-málinu.
“Fyrir nokkrum mánuðum síðan fór m.a. Steingrímur J. Sigfússon mikinn í andstöðu við samninga um Icesave skuldbindingar Íslands en Bjarni Benediktsson mælti fyrir tillögu um að gengið yrði til samninga í málinu. Framsóknarmenn vildu samninga en einungis Vinstri grænir og Frjálslyndir þar á meðal ég vorum með fyrirvara og greiddum tillögunni ekki atkvæði.
Síðan þá er komin ný ríkisstjórn og endurnýjuð ríkisstjórn í kjölfar kosninga. Steingrímur J. hefur látið helsta lautinant sinn Svavar Gestsson stúdent, fyrrum formann Alþýðubandalagsins vinna að samningagerð og í gær er kynnt að niðurstaða sé komin í málið og samningsdrög kynnt. Alþingi á ekki að fjalla um samningsdrögin að því er virðist fyrr en þau hafa verið undirrituð af Íslands hálfu en þá á að leggja tillögu fyrir þingið vegna ríkisábyrgðar. Virðing fyrir Alþingi og að þjóðkjörnir fulltrúar komi að málinu á öllum stigum er ekki fyrir hendi hjá ríkisstjórninni.
Eitt af því sem Steingrímur J. Sigfússon lagði sérstaka áherslu á í lok síðasta árs þegar hann var í stjórnarandstöðu að Alþingi hefði með ákvörðun og forræði málsins að gera á öllum stigum. Nú er hlutverkum breytt og Steingrímur situr sem helsti hershöfðingi valdstjórnarinnar. Þá skiptir Alþingi ekki lengur máli. Þá er eðlilegt að ganga frá samningum án atbeina Alþingis.“
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 21:36
Dimmuborgir í uppáhaldi
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 20:38
"Hvernig dirfist" Þorgerður Katrín?
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 20:25
Bara hugleiðingar hjá ríkisstjórninni
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 19:04
„Besta stúlkan í heiminum“
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 17:27
Vaknaði með 56 tattú á andlitinu
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 16:35
Nágrönnum þingmanns VG misboðið
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 15:47
Útnefnd borgarlistmaður Reykjavíkur
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 15:30
Unnustinn var klámstjarna í leyni
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 15:13
Þór Saari fékk hláturskast á Hollending
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 14:46
Ólafur sæmdi tíu fálkaorðu
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 13:49
Ritstjóri vill láta reka Evu Joly
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 13:35
Sveitalubbar í Ameríku
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 12:46
Fjórir handteknir: Greiddu með stolnu korti
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 12:10
Ríkisstjórn fyrir banka en ekki fólk
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 12:04
Natalía og Tara fundnar
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 11:50
Verðlaunahafar Grímunnar 2009
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 11:00
Sigurjón kenndi faglegar aðferðir
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 10:45
Nöfnur verða systur
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 10:01
Fosters ódýrastur
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 09:30









