ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Segir samninga- nefnd hafa skort sérfræðiþekkingu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:05 › 7. júní 2009
Jón Magnússon segir að samninganefndinni hafi skort sérfræðiþekkingu.

Jón Magnússon segir að samninganefndinni hafi skort sérfræðiþekkingu. Mynd DV

Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður, gagnrýnir samninganefnd í Icesave málinu og segir hana hafa skort sérfræðiþekkingu. Jón rifjar upp þær gagnrýnisraddir sem komu úr ranni Samfylkingarinnar og Vinstri græna um að fjármálaráðherra væri dýralæknir og seðlabankastjóri lögfræðingur.

„Í samræmi við það skipar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gamlan vopnabróður sinn úr Alþýðubandalaginu, Svavar Gestsson stúdent til að fara fyrir samninganefnd um flókin lögfræðileg, þjóðréttarleg og bankaréttarleg málefni vegna Icesave. Hvar skyldu VG og Samfylkingi [sic] hafa fundið viðunandi sérfræði hjá Svavari til að leiða samninganefndina eða næga sérfræðiþekkingu hjá nefndinni að öðru leyti. Gaman væri nú að heyra í fjölmiðlafólkinu sem mest hneykslaðist í vetur á skorti á sérþekkingu og þá sérstaklega Agli Helgasyni sem ítrekað fjallaði um málið,“ segir Jón Magnússon á bloggsíðu sinni.

Hann segir ennfremur að samningarnir um Icesave sem ríkisstjórnin hafi nú undirritað séu í samræmi við það sem við var að búast af „jafn vanhæfri samninganefnd og um ræðir.“ Hann segir að svo virðist sem láðst hafi að taka tillit til beitingu Breta á hryðjuverkalögum gagnvart Íslandi. Í öðru lagi sé vaxtaákvæði samningsins gjörsamlega frálett. Greiðslutíminn sé hinsvegar jákvæður. Það sé það eina.

„Það er með ólíkindum að ríkisstjórin skuli hafa fallist á jafn slæma samninga fyrir Ísland. Góð samninganefnd skipuð góðum sérfræðingum og ríkisstjórn sem byggi yfir nauðsynlegri sérfræðiþekkingu hefði ekki gert slíkan samning. Fjölmiðlamennirnir sem hrópuðu hvað hæst í lok síðasta árs og byrjun þessa ættu að fjalla um málið út frá því sjónarmiði til að vera samkvæmir sjálfum sér,“ segir Jón.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.