Karlar í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, gerðu í gærkvöldi nokkuð sem þeir hafa ekki gert í þrjá áratugi; þeir fóru í bíó. Ungir piparsveinar, sem vildu gera hosur sínar grænar fyrir kvenpeningnum, fengu þó ekki tækifæri til þess, þar sem engum konum var hleypt inn í kvikmyndahúsið.
Það var þó ekki Terminator Salvation eða Star Trek sem gestir kvikmyndahússins sáu, heldur var það Sádi-arabíska myndin Menahi sem kvikmyndagestir börðu augum. Menahi er gamanmynd sem segir frá Arabanum Bedouin sem á erfitt með að aðlagast lífinu í Dúbaí.
Íhaldssamir Sádi-Arabar voru þó ekki allir ánægðir með framförina og safnaðist hópur mótmælenda saman fyrir utan kvikmyndahúsið. Áhorfendur, sem voru svo heppnir að fá miða, létu mótmælendurna þó afskiptalausa enda ekki á hverjum degi sem þeim býðst að smjatta á poppkorni yfir kvikmynd.
Sádi-arabísk stjórnvöld hafa tekið þá meðvituðu ákvörðun að opna þjóðfélagið meira fyrir menningu og annarskonar afþreyingu sem hingað til hefur verið af skornum skammti. Þessi framför hófst árið 2005 þegar Abdullah konungur tók við völdum. Þrátt fyrir það hafa engin kvikmyndahús opnað formlega í landinu en sýningin í gærkvöldi fór fram í ríkisrekinni menningarmiðstöð. Íbúar landsins gera sér þó vonir um að gærkvöldið gefi góð fyrirheit um framtíðina og því aldrei að vita nema næsta Star Trek mynd rati í kvikmyndahús í Sádi-Arabíu.






Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu