ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Reyndi að ræna kærasta dóttur sinnar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:25 › 7. júní 2009
Lögreglan handtók konurnar og dótturina skömmu síðar.

Lögreglan handtók konurnar og dótturina skömmu síðar. Mynd Photos

Lögregla í smábæ í Norður-Karólínu handtók á dögunum tvær konur sem reyndu að ræna kærasta dóttur annarrar konunnar. Þær fóru á heimili piltsins og bundu hann með límbandi.

Pilturinn, sem er 21 árs, sagði við lögreglu að þær hafi numið sig á brott til að hann myndi ekki hitta stúlkuna aftur. Áður en af því varð slapp pilturinn úr prísundinni og tilkynnti málið til lögreglu og voru báðar konurnar handteknar skömmu síðar.

Kærasta piltisins var einnig handtekinn fyrir að reyna að hafa áhrif á piltinn og hvetja hann til að tilkynna málið ekki til lögreglu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.