Neita að borga IceSave-skuldir

Sífellt fleiri skrá sig í hópinn á Facebook.

Sífellt fleiri skrá sig í hópinn á Facebook.

Sunnudagur 7. júní 2009 kl 13:27

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Rúmlega 3600 manns hafa skráð sig í hóp á Facebook sem heitir einfaldlega „Við neitum að borga skuldir sem við berum ekki ábyrgð á! (Icesave-málið)“. Hópurinn var stofnaður klukkan níu á föstudagskvöldið síðasta og fyrsta sólarhringinn skráðu þrettán hundruð manns sig.

„Bresk stjórnvöld hafa með fulltingi Evrópusambandsins beitt harðræði, og í sumum tilfellum hreinu og kláru ofbeldi, til þess að fá okkur til þess að taka á okkur alla ábyrgð á starfsemi bankanna m.a. með beitingu hryðjuverkalaga gegn hagsmunum íslenskra fyrirtækja í Bretlandi sem og hagsmunum íslenska ríkisins.

Breskir ráðamenn hafa neitað að samþykkja að málið verði útkljáð fyrir dómstólum vegna þess að þeir óttast niðurstöðuna. Sama á við um Evrópusambandið sem er full kunnugt um ábyrgð sína í málinu vegna meingallaðs lagaumhverfis sem við tókum upp hér á landi í gegnum EES-samninginn.

Evrópusambandið veit að það gæti sett allt innlánskerfið í ríkjum þess í uppnám ef dómstóll úrskurðaði okkur Íslendingum í vil. Því hefur verið lagt allt kapp á að kúga okkur til þess að fallast skilyrðislaust á kröfur breskra og hollenskra stjórnvalda í málinu. Okkar hagsmunum er einfaldlega fórnað,“ stendur á síðunni.

Forráðamenn síðunnar krefjast aðgerða.

„Ríkisstjórn Íslands hefur nú svo gott sem lagt blessun sína yfir þennan ráðahag. Það er ekki gert í okkar nafni. Við neitum að borga skuldir sem við berum ekki ábyrgð á. Við krefjumst þess að málið verði leitt til lykta fyrir þar til bærum hlutlausum dómstóli!“


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 21:36

Dimmuborgir í uppáhaldi

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 20:38

"Hvernig dirfist" Þorgerður Katrín?

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 20:25

Bara hugleiðingar hjá ríkisstjórninni

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 19:04

„Besta stúlkan í heiminum“

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 17:27

Vaknaði með 56 tattú á andlitinu

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 16:35

Nágrönnum þingmanns VG misboðið

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 15:47

Útnefnd borgarlistmaður Reykjavíkur

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 15:30

Unnustinn var klámstjarna í leyni

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 15:13

Þór Saari fékk hláturskast á Hollending

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 14:46

Ólafur sæmdi tíu fálkaorðu

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 13:49

Ritstjóri vill láta reka Evu Joly

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 13:35

Sveitalubbar í Ameríku

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 12:46

Fjórir handteknir: Greiddu með stolnu korti

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 12:10

Ríkisstjórn fyrir banka en ekki fólk

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 12:04

Natalía og Tara fundnar

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 11:50

Verðlaunahafar Grímunnar 2009

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 11:00

Sigurjón kenndi faglegar aðferðir

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 10:45

Nöfnur verða systur

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 10:01

Fosters ódýrastur

Miðvikudagur 17. júní 2009 kl 09:30

120 þúsund evrur eftir helgi