ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

„Ice-slave samkomulagið“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:01 › 7. júní 2009
Eiríkur Bergmann segir það óskiljanlegt að íslensk stjórnvöld hafi samþykkt að skuldbinda þjóðina á klafa skulda sem eru á ábyrgð Alistair Darlings og Gordons Brown.

Eiríkur Bergmann segir það óskiljanlegt að íslensk stjórnvöld hafi samþykkt að skuldbinda þjóðina á klafa skulda sem eru á ábyrgð Alistair Darlings og Gordons Brown. Mynd DV

Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst, segir að Bretar séu glaðir með Icesave samkomulagið – enda hafi þeir unnið fullnaðarsigur í málinu. „Íslensk stjórnvöld gera samkomulagið í þeirri veiku von að eignir Landsbankans dugi langleiðina upp í ógnarskuldina, heila 650 milljarða íslenskra króna. Hér er þó engan veginn á vísan að róa, enginn veit hvert virði eignanna eða gengi krónunnar verður í framtíðinni,“ segir Eiríkur á bloggsíðu sinni í færslu sem ber yfirskriftina Iceslave samkomulagið.

Eiríkur segir að það veki athygli að Íslendingar beri alla áhættuna en Bretar gangi frá samningaborðinu með „bæði axlabönd og belti“. Hann segir að íslensk stjórnvöld hafi fengið gullið tækifæri til að varpa ábyrgðum á Icesave-skuldunum yfir á bresk stjórnvöld um leið og þau beittu hryðjuverkalögum og frystu eignir bankans í Bretlandi.

„Því er óskiljanlegt að íslensk stjórnvöld hafi samþykkt að skuldbinda þjóðina á klafa skulda sem augljóslega eru á ábyrgð þeirra Alistair Darlings og Grodon Browns. Menn skyldu hafa í huga að þetta er ekki aðeins lagalegt álitamál, heldur pólitískt: Alþjóðastjórnmál lúta öðrum lögmálum heldur en innalandsstjórnmál og þjóðarréttur er mun loðnara fyrirbæri en landsréttur.“

Færsla Eiríks



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.