ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 4m/s E

Fleiri lík úr Air France-þotunni fundin

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:57 › 7. júní 2009
Þrjú lík til viðbótar eru fundin.

Þrjú lík til viðbótar eru fundin. AFP

  • Hér fundust fyrstu líkin í gær.

    Hér fundust fyrstu líkin í gær.AFP

Rétt í þessu fundust þrjú lík til viðbótar úr Air France-þotunni sem hrapaði á mánudaginn. Samkvæmt Sky-fréttastofunni hafa brasilísk yfirvöld séð óstaðfestan fjölda líka í vatninu og eru skip á leiðinni að sækja þau.

Í gær fundu leitarmenn tvö lík og blátt sæti með raðnúmeri sem passaði við raðnúmer Air France-flugsins númer 447.

228 manns voru um borð í vélinni þegar hún hrapaði fyrir tæpri viku.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.