ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 4m/s E

Blindur sektaður fyrir umferðarlagabrot

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:40 › 7. júní 2009
George Day var sektaður fyrir umferðarlagabrot. Hann er blindur og hefur aldrei keyrt bíl.

George Day var sektaður fyrir umferðarlagabrot. Hann er blindur og hefur aldrei keyrt bíl. Mynd Photos

Hinum fimmtuga George Day frá Birmingham brá heldur betur í brún á dögunum þegar hann fékk senda sektarmiða heim til sín vegna nokkurra umferðarlagabrota. George er blindur og hefur aldrei á ævinni ekið bíl.

George reyndi að útskýra málið fyrir lögreglu sem daufheyrðust við óskum hans um að fá sektina fellda niður. Hann þurfti því að mæta í dómsal vegna málsins þar sem honum tókst að sýna fram á sakleysi sitt. Síðar kom í ljós að George var fórnarlamb auðkennisþjófnaðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.