Raymond Hewlett, 64 ára dæmdur barnaníðingur, segist ekki hafa séð Madeleine McCann á Portúgal skömmu áður en hún hvarf eins og áður hefur verið greint frá. Þýska blaðið Bild birti frétt þess efnis í gær að Hewlett hefði sé Madeleine í tvígang en hann var búsettur í Algarve, skammt frá staðnum sem Madeleine hvarf árið 2007.
„Ég hef aldrei séð hana og hver sá sem heldur öðru fram hefur ekki rétt fyrir sér,“ hefur breska blaðið Mirror eftir Hewlett. Hewlett hefur mörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum á samviskunni. Einkaspæjarar McCann hjónanna hafa ólmir viljað ná tali af Hewlett vegna málsins en hann ávallt neitað. Hann er nú staddur í Þýskalandi vegna rannsóknar þarlendra yfirvalda á dauða stúlku árið 1975.
Hewlett er með krabbamein í hálsi en samkvæmt frétt Mirror er meinið það stórt að læknar telja sig ekki geta fjarlægt það.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu