ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Leynigögn: Greiðslurnar sem útibússtjórinn kannast ekki við

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:30 › 5. júní 2009
  • Viðskiptakvittunin sem sýnir fram á greiðslurnar frá Knerri til Sigurðar og þáverandi eiginkonu konu Guðmundar Inga. Samanlagt voru þetta 7 milljónir króna sem voru gróði af hlutabréfaviðskiptum Knerris með bréf í Landsbankanum.

    Viðskiptakvittunin sem sýnir fram á greiðslurnar frá Knerri til Sigurðar og þáverandi eiginkonu konu Guðmundar Inga. Samanlagt voru þetta 7 milljónir króna sem voru gróði af hlutabréfaviðskiptum Knerris með bréf í Landsbankanum.

  • Guðmundur Ingi segist ekkert kannast við greiðslurnar. Mál hans hefur verið sent til Fjármálaeftirlitsins og efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra.

    Guðmundur Ingi segist ekkert kannast við greiðslurnar. Mál hans hefur verið sent til Fjármálaeftirlitsins og efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra.

Guðmundur Ingi Hauksson, fyrrverandi útibússtjóri Landsbankans í Austurstræti, segist í samtali við DV í dag ekkert kannast við greiðslurnar tvær frá Knerri inn á reikninga Sigurðar Björns Sigurðarssonar og þáverandi eiginkonu útibússtjórans, Sigríðar Sveinsdóttur. Guðmundi var vikið úr starfi sínu á miðvikudaginn vegna aðkomu sinnar að málinu. Millifærslurnar líta út fyrir að vera greiðslur til Guðmundar í staðinn fyrir lánveitingar til eignarhaldsfélagsins Knerris frá Landsbankanum.

„Vegna bankaleyndar get ég ekkert tjáð mig um þetta félag né önnur sem eiga í viðskiptum við bankann,“ segir útibússtjórinn fyrrverandi í viðtali við blaðið í dag. Viðskiptin áttu sér stað í apríl og október á árinu 2005. Knerrir fékk lán upp á 20 milljónir króna frá Landsbankanum til að kaupa hlutabréf í bankanum. Bréfin hækkuðu í verði frá því í apríl og fram í október þegar þau voru seld. Sjö milljónir af tæplega 8 milljóna hagnaði af hlutabréfakaupunum voru lagðar inn á reikninga Sigurðar og Sigríðar nokkrum dögum eftir sölu hlutabréfanna.

Í samtali við DV í dag segir Sigríður ekkert kannast við milljóna millifærsluna inn á reikninginn hennar. „Ég var flutt til útlanda þegar þetta var og veit ekkert um þetta mál... Ég var gift á þessum tíma og maðurinn minn hafði aðgang að mínum reikningi. Ég man ekki eftir þessu, hvorki þessu innleggi né úttektinni,“ segir Sigríður. Sigurður segir það sama í samtali við blaðið.

Landsbankinn sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fram kom að mál Guðmundar hefði verið sent til Fjármálaeftirlitsins og efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.