Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur Kaupþings, gaf stjórn bankans grænt ljós á niðurfellingu ábyrgða nokkurra starfsmanna Kaupþings.
Samkvæmt lánabók Kaupþings skuldaði Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur Kaupþings, bankanum tæpar 450 milljónir sumarið 2006 vegna lána sem hann hafði fengið til hlutabréfakaupa í bankanum. Helgi veitti stjórninni lögfræðilegt álit um að hún hefði heimildir til þess samkvæmt lögum að fella persónulegar ábyrgðir starfsmanna niður. Helgi vill ekki tjá sig um lánin; telur þau einkamál.
DV mun á næstunni greina frá því markverðasta í lánabókinni.
Helgi var sjálfur einn af þeim lykilstarfsmönnum Kaupþings sem hafði fengið lán hjá bankanum til að kaupa hlutabréf í honum. samkvæmt lánabók Kaupþings frá sumrinu 2006 námu lánveitingar bankans til Helga 449,5 milljónum króna á þeim tíma þó reikna megi með að Helgi hafi fengið fleiri lán næstu tvö árin þar á eftir. Ákvörðun stjórnarinnar, sem gerð var með því samþykki Helga um að niðurfellingin væri lögmæt, hafði því þau áhrif að Helgi losnaði úr allri persónulegri ábyrgð fyrir láninu.
Lánabók Kaupþings í DV í dag.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
