ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Tólf aðdáendur Jacksons hafa framið sjálfsmorð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:00 › 30. júní 2009
Andlát Jacksons hefur djúp áhrif á fjölda fólks um allan heim.

Andlát Jacksons hefur djúp áhrif á fjölda fólks um allan heim.

Gary Taylor, eigandi MJJcommunity.com, eins af aðdáendaklúbbum Michael Jacksons á netinu, segir að að minnsta kosti tólf einstaklingar hafi framið sjálfsmorð vegna fráfalls poppkóngsins. Taylor segir ástandið grafalvarlegt.

„Ég veit að það hefur verið aukning sjálfsmorða. Ég held að talan sé núna tólf,“ sagði Taylor við blaðamenn vestan hafs í gær.

„Þetta fólk er að fara í gegnum mjög alvarleg vandamál en Michael Jackson hefði ekki viljað þetta. Hann hefði viljað að þau myndu lifa.“

Presturinn Jesse Jackson, náinn vinur poppkóngsins, hefur líka reynt að ná til fólks í gegnum Youtube og hvatt fólk til að taka dauðsfall Jacksons ekki það nálægt sér að það svipti sig lífi.

„Við skulum lifa saman sem bræður og systur í nafni Michaels en ekki deyja sundruð eins og fífl,“ segir presturinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.