Um þúsund manns hafa skrifað nafn sitt á undirskriftalista á vefsíðunni kjosa.is. Þar er skorað á forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, að synja, ef til þess kemur, „staðfestingar lagafrumvarpi um fjárhagslega ábyrgð íslenska ríkisins vegna svonefndra Icesave-samninga við hollensk og bresk stjórnvöld.“
Á vefsíðunni heimta ábyrgðarmenn hennar að þjóðin fái að kjósa um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Ríkisábyrgð vegna samninganna getur raskað lífi þjóðarinnar stórkostlega um mörg ókomin ár. Að hafna ábyrgðinni getur á sama hátt orðið afdrifaríkt. Ábyrgðin og byrðarnar yrðu þannig lagðar þjóðinni á herðar í báðum tilvikum. Því er rétt að þjóðin sjálf skeri úr um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Slíkt fyrirkomulag er ekki aðeins réttmætt og sanngjarnt heldur einnig nauðsynlegt til að ná sæmilegri sátt um þá leið sem farin verður. Herra forseti, við viljum málið í okkar hendur.“
Tekið er fram að ekki er tekin afstaða með eða á móti Icesave-samningum ríkisstjórnar Íslands við hollensk og bresk stjórnvöld heldur miðar áskorunin að því að almenningur geri út um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun