ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Slagsmál út af dauða Jackson

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:14 › 30. júní 2009
Dauði poppstjörnunnar olli slagsmálum í strætisvagni á Flórída á fimmtudaginn, daginn sem Jackson lést.

Dauði poppstjörnunnar olli slagsmálum í strætisvagni á Flórída á fimmtudaginn, daginn sem Jackson lést. Mynd AFP

Fréttir af dauða poppstjörnunnar Michael Jackson, sem lést á fimmtudag, snertu marga aðdáendur hans mikið. Þó er ljóst að skoðanir manna um ágæti hans voru skiptar eins og farþegar strætisvagns í Flórída komust að þegar fréttir af láti hans fóru að berast manna á milli.

Einn farþegi strætisvagnsins, James Kiernan, fékk sent smáskilaboð frá félaga sínum með fréttum þess efnis að Jackson væri látinn. Kiernan las skilaboðið upphátt svo allir farþegar vagnsins heyrðu. Bílstjórinn svaraði því hinsvegar til að Jackson hefði átt að vera kominn bak við lás og slá fyrir löngu og vísaði líklega til sakargifta þess efnis að Jackson hafi brotið gegn börnum á árum áður. Kiernan svaraði hinsvegar og sagði að heimsbyggðin hefði misst einn hæfileikaríkasta tónlistarmann sögunnar. Þá varð fjandinn laus.

Það var þó ekki bílstjóri strætisvagnsins sem brást svona illa við heldur annar farþegi, sem virðist hafa verið á sömu skoðun og bílstjórinn. Eftir nokkurt orðaskak fóru Kiernan og hinn farþeginn, Henry Wideman, að slást, sem endaði með því að sá síðarnefndi dró upp hníf og hótaði að stinga Kiernan.

Bílstjórinn hringdi á lögregluna og stöðvaði vagninn. Wideman var handtekinn og þurfti að dúsa bak við lás og slá aðfaranótt föstudags. Hann á yfir höfði sér ákæru fyrir brot gegn vopnalögum og fyrir að hóta Kiernan með lífshættulegu vopni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.