„Og ég sem var hætt í fjölmiðlum,“ segir Sigríður Arnardóttir betur þekkt sem Sirrý en hún undirbýr nú nýjan útvarpsþátt á Rás 2. „Ég hélt að ég væri búinn að taka minn skerf að viðtölum fyrir lífið,“ heldur Sirrý áfram en hún hafði starfað við fjölmiðla í meira en tuttugu ár þegar hún ákvað að söðla um og gerast ráðgjafi í almannatengslum. Síðan þá hefur Sirrý starfað við að halda námskeið og fyrirlestra fyrir hin ýmsu fyrirtæki og stofnanir.
„Þættirnir heita Sunnudagsmorgnar með Sirrý,“ en Sirrý ætti að fara létt með að stjórna útvarpsþætti enda starfaði hún lengi við útvarp á árum áður. „Ég var fastráðin lengi á útvarpinu, var ritstjóri Dægurmálaútvarps Rásar 2 fyrir meira en 10 árum og sá í mörg ár um þætti eins og Samfélagið í nærmynd á Rás 1. Þannig að útvarpið er miðill að mínu skapi.“ Sirrý segist kvíða það nokkuð að byrja aftur enda tæknin breyst mikið síðan hún var í útvarpi síðast.
„Þátturinn verður á dagskrá á sunnudögum í júlí og ágúst frá klukkan átta og fram að hádegisfréttum.“ Það verður ýmislegt á dagskrá hjá Sirrý og nefnir hún sem dæmi, „Ragnheiður Eiríks hjúkrunarfræðingur verður ráðgjafi hjá mér, ég leita uppi bestu sakamálasögurnar og tek veðrið og fæ hljóðmyndir af sumrinu um land allt. Svo koma góðir gestir í morgunkaffi.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum