ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Sautján ára á ofsahraða

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:25 › 30. júní 2009
Nóg var að gera hjá lögreglunni í gær í umferðinni.

Nóg var að gera hjá lögreglunni í gær í umferðinni.

Mikið bar á hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu í gær en lögreglan stöðvaði för rúmlega sjötíu ökumanna fyrir þær sakir. Ökufantarnir voru teknir víðsvegar í umdæminu en eitt grófasta brotið var framið á Reykjanesbraut í Garðabæ, á móts við IKEA.

Þar mældist bíll sautján ára stúlku á 121 kílómetra hraða en á þessum hluta vegarins er sjötíu kílómetra hámarkshraði. Stúlkan fékk ökuskírteini í hendur fyrir fáeinum vikum en á greinilega mikið ólært að sögn lögreglu.

Þá var hálfþrítug kona staðin að hraðakstri á Vesturlandsvegi, neðan við Bauhaus. Hún ók á 130 kílómetra hraða en áttatíu kílómetra hámarkshraði er á svæðinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.