ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Neitar sök í nauðgunarmáli

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:47 › 30. júní 2009
Maðurinn neitar sök og segir að hann hafi haft samfarir við konuna með hennar vilja. Dómur í málinu verður kveðinn upp þann 10. júlí.

Maðurinn neitar sök og segir að hann hafi haft samfarir við konuna með hennar vilja. Dómur í málinu verður kveðinn upp þann 10. júlí. Mynd DV

Karlmaður um þrítugt hefur setið í gæsluvarðhaldi undanfarnar þrjár vikur grunaður um að nauðga konu í heimahúsi í Hafnarfirði. Samkvæmt heimildum DV hitti maðurinn, sem er af erlendu bergi brotinn, konuna, sem er íslensk, á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur.

Aðalmeðferð í málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og neitaði maðurinn sök samkvæmt heimildum DV. Maðurinn játaði að hafa haft samfarir við konuna en sagði að það hafi verið með hennar vilja. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í kjölfar þess að málið kom upp og rennur úrskurðurinn úr gildi þann tíunda júlí, eða sama dag og dómur verður kveðinn upp.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.