ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Milljarðatjón vegna kvótabrasks

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:40 › 30. júní 2009
Skýrsluhöfundar. Þórður Már (t.h.) og Finnbogi (t.v.) lýsa ákveðnum tilfærslum með kvóta sem braski og margar útgerðir taki kvóta ýmissa tegunda í gíslingu.

Skýrsluhöfundar. Þórður Már (t.h.) og Finnbogi (t.v.) lýsa ákveðnum tilfærslum með kvóta sem braski og margar útgerðir taki kvóta ýmissa tegunda í gíslingu. Mynd Heiða Helgadóttir

Í nýrri úttekt er sýnt fram á hvernig útgerðir safna kvóta ódýrra fiskitegunda á einstök skip til þess eins að auka svigrúm til leigja út dýrar tegundir frá skipinu, svo sem þorsk og ýsu. Þetta leiðir til vannýtingar á fjölda fiskitegunda og milljarðataps fyrir þjóðarbúið. Höfundar skýrslunnar furða sig á sinnuleysi Fiskistofu sem viti augljóslega af litlum fiskiskipum með hundruð tonna úthafsfækjukvóta sem þau hafi enga getu til þess að veiða. Slíkt sé brot á lögum um stjórn fiskveiða.

Það voru laganemarnir Finnbogi Vikar og Þórður Már Jónsson, sem nýverið unnu skýrslu um málið meðfram námi við Háskólann á Bifröst. Þórður, sem er viðskiptalögfræðingur, segir að útvegsmenn, sem kynnt hafi sér efni skýrslunnar, hafi helst lagt að sér að efni hennar yrðu stungið ofan í skúffu. „Útgerðarmaður af landsbyggðinni furðaði sig á því hvers vegna við ætluðum að birta efni skýrslunnar í stað þess að nýta þekkingu okkar til þess að hagnast sjálfir á leigubraski.“

Nánar í DV í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.