„Lengra getur spillingin ekki náð, meiri getur vanhæfnin ekki orðið,“ segir Jónas Kristjánsson á bloggsíðu sinni um Helga Sigurðsson yfirlögfræðing Kaupþings.
Eins og DV greinir frá í dag skuldaði Helgi bankanum tæpar 450 milljónir króna sumarið 2006 vegna láns sem hann hafði fengið til hlutabréfakaupa í bankanum. Aukinheldur gaf Helgi stjórn Kaupþings grænt ljós á að fella niður persónulegar ábyrgðir fyrir lánum sem nokkrir af lykilstjórnendum bankans höfðu fengið fyrir að kaupa hlutabréf í bankanum.
Jónas segir að frétt DV um lánið sé „skúbb ársins“ og segir hann að menn hafi mánuðum saman vitnað í lögmanninn eins og guð almáttugan. „Sér er nú hver guð. Gylfi Magnússon vísaði til hans eins og til Hæstaréttar, er enn einu sinni orðinn að fífli. Lögmaður Kaupþings var að úrskurða um sjálfan sig, svo einfalt er það. Hann er enn lögmaður bankans, svo botnlaust er siðleysið. Því meira sem hlutirnir breytast, þeim mun meira eru þeir eins og þeir hafa alltaf verið.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun