ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Jackson er í felum í Austur-Evrópu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:29 › 30. júní 2009
Aðdáendur Jacksons geta ekki sætt sig við það að poppkóngurinn sé látinn.

Aðdáendur Jacksons geta ekki sætt sig við það að poppkóngurinn sé látinn.

  • Er þetta Jackson? Ómögulegt að segja.

    Er þetta Jackson? Ómögulegt að segja.

Michael Jackson setti dauða sinn á svið til að losna undan álagi frægðarinnar. Þetta segja æstir aðdáendur poppkóngsins sem trúa því að goðið sé á lífi. Þúsundir aðdáenda hafa skrifað brjálæðislegar samsæriskenningar inn á hinar ýmsu vefsíður síðan kóngurinn lést. Mátti svo sem búast við þessu þar sem margir aðdáendur Elvis Presley halda enn að hann sé á lífi.

Ein þessara vefsíðna, michaeljacksonsightings.com, hefur birt mynd og heldur því fram að hún sé af Jackson á sunnudaginn, þremur dögum eftir andlát hans. Ekki er hægt að sjá andlit meints Jacksons og engin sönnun fylgir að myndin sé ný.

Á síðunni er sagt að maðurinn sem lést á fimmtudaginn sé tvífari Jacksons sem þjáðist af banvænum sjúkdómi og hugsað verði um fjölskyldu hans í staðinn.

Önnur vefsíða heldur því fram að Jackson hafi verið búinn að skipuleggja andlátt sitt í eitt og hálft ár og sé nú í felum í Austur-Evrópu.

Þriðja síðan segir að sést hafi til Jacksons að fara yfir mexíkósku landamærin klukkustundum eftir að fréttir af dauða hans brutust út.

Engar sannanir fylgja þessum staðhæfingum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.