Hægt væri að greiða fyrir endurhæfingu tæplega 900 einstaklinga í níu mánuði á vegum Hringsjáar, starfs- og endurhæfingar á vegum Öryrkjabandalags Íslands. Mynd Heiða Helgadóttir
Kristján Arason, fyrrverandi framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kaupþings, skuldaði bankanum 893 milljónir króna um mitt ár 2006. Kristján hafði fengið lánið til að kaupa hlutabréf í bankanum. Þetta kemur fram í lánabók Kaupþings frá því í lok júní árið 2006 sem DV hefur undir höndum. DV kannaði hvað hægt er að gera fyrir 893 milljónir.
Borga fyrir 600 leikskólabörn
Hægt væri að greiða tæplega tíu prósent af árlegum útgjöldum Reykjavíkurborgar vegna reksturs leikskóla borgarinnar, eða kostnaðinn við að hafa meira en 600 börn í leikskólunum.
Fæða þúsundir
Hægt væri að fæða öll 6400 börnin í leikskólum Reykjavíkurborgar í meira en eitt ár og foreldrarnir þyrftu ekkert að niðurgreiða af matnum.
Atvinnuleysisbætur sex þúsund Íslendinga
Hægt væri að greiða grunnatvinnuleysisbætur 6000 Íslendinga í einn mánuð. Þetta er tæplega helmingur allra Íslendinga sem voru atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi ársins 2009.
Sleppa niðurskurði í framhaldsskólakerfinu
Hægt væri að sleppa 5 prósent niðurskurði í íslenska framhaldsskólakerfinu fyrir skólaárið 2009-2010 og hægt væri að sleppa meira en helmingi af 1700 milljóna króna niðurskurði Háskóla Íslands fyrir skólaárið.
Endurhæfa 900 öryrkja
Hægt væri að greiða fyrir endurhæfingu tæplega 900 einstaklinga í níu mánuði á vegum Hringsjáar, starfs- og endurhæfingar á vegum Öryrkjabandalags Íslands.
Fleiri dæmi og ítarleg umfjöllun um lánabók Kaupþings í DV í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna