Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur Nýja Kaupþings banka, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu frá og með deginum í dag, 30. júní 2009. DV opinberaði í dag hluta úr lánabók Kaupþings frá júní 2006 þar sem meðal annars kom fram að Helgi hafi skuldað bankanum tæpar 450 milljónir króna.
Helgi veitti stjórn bankans lögfræðilegt álit um að hún hefði heimildir til þess samkvæmt lögum að fella persónulegar ábyrgðir starfsmanna niður. Helgi var hinsvegar sjálfur einn af þeim lykilstarfsmönnum Kaupþings sem hafði fengið lán hjá bankanum til að kaupa hlutabréf í honum. Í tilkynningu frá Nýja Kaupþingi segir að Helgi hafi tekið ákvörðunina í því skyni að skapa frið um bankann og enduruppbyggingu hans.
Bæði Helgi og Nýja Kaupþing sendu frá sér yfirlýsingu vegna málsins í dag. Í yfirlýsingu Helga segir hann meðal annars: „Í ljósi síendurtekinnar og villandi umræðu um aðkomu mína að ákvörðun um lán til starfsmanna gamla Kaupþings banka, tel ég ljóst að ekki geti skapast sá friður um störf mín fyrir bankann sem nauðsynlegt er. Ég hef því ákveðið að segja starfi mínu lausu frá og með deginum í dag.“ Helgi tilgreinir þó ekki nákvæmlega að hvaða leyti umræðan hafi verið villandi.
Í ljósi umfjöllunar að undanförnu um aðkomu Helga að kaupréttarsamningum starfsmanna gamla Kaupþings vill Nýja Kaupþing hinsvegar koma eftirfarandi á framfæri: „Stjórn Nýja Kaupþings fór fram á lögfræðiálit frá tveimur utanaðkomandi lögfræðingum þeim, Viðari Má Matthíassyni lagaprófessor og Herði Felix Harðarsyni hrl., til að meta lögmæti ákvörðunar gamla Kaupþings. Samkvæmt álitum þeirra hefur stjórn Nýja Kaupþings ekki heimild til að rifta ákvörðun stjórnar gamla bankans. Stjórn Nýja Kaupþings ætlar hins vegar ekki að afskrifa lán til starfsmanna vegna hlutabréfakaupa á meðan kæra hluthafa vegna lánanna er til meðferðar hjá sérstökum saksóknara.“
Ennfremur segir að Helgi Sigurðsson hafi ekki tekið þátt í störfum núverandi stjórnar þegar starfsmannalán hafa verið rædd og ekki setið fundi þar sem ákvarðanir um þau voru teknar.
„Stjórn og starfsfólk Nýja Kaupþings þakkar Helga Sigurðssyni vel unnin störf,“ segir í lok yfirlýsingarinnar frá Nýja Kaupþingi.
Yfirlýsing Helga:
Í ljósi síendurtekinnar og villandi umræðu um aðkomu mína að ákvörðun um lán til starfsmanna gamla Kaupþings banka, tel ég ljóst að ekki geti skapast sá friður um störf mín fyrir bankann sem nauðsynlegt er. Ég hef því ákveðið að segja starfi mínu lausu frá og með deginum í dag.
Ég hef notið þeirra forréttinda að starfa fyrir Kaupþing næsta óslitið síðan 1989 með frábærum samstarfsmönnum. Frá árinu 2002 hef ég verið yfirmaður lögfræðisviðs og ábyrgur fyrir þeim álitum sem sviðið hefur gefið stjórn bankans. Þar á meðal hvort stjórn bankans væri heimilt að fella niður persónulega ábyrgð á lánveitingum til starfsmanna í september sl. Sú niðurstaða að stjórn bankans hefði lögformlegar heimildir til að fella niður persónulega ábyrgð var í samræmi við ákvörðun hluthafafundar í ársbyrjun 2004 um að starfsmenn bæru ekki fjárhagslega áhættu af kaupum á hlutafé í bankanum. Þessi stefna bankans hafði jafnframt verið kynnt Fjármálaeftirlitinu í árslok 2003. Á sama hátt og stjórn bankans setti einhliða á takmarkaðar persónulegar ábyrgðir árið 2005 var það álit lögfræðisviðs Kaupþings að hún gæti fellt þá ábyrgð niður með sama hætti. Tvö lögfræðiálit sem stjórn Nýja Kaupþings hefur látið vinna fyrir sig, frá Viðari Má Matthíassyni prófessor og Herði Felix Harðarsyni, hrl. styðja það álit.
Ég hef ekki komið að ákvörðun stjórnar Nýja Kaupþings um hvernig hún fer með þessi lán sem flutt voru yfir frá gamla bankanum. Ég vil óska núverandi og fyrrverandi samstarfsmönnum mínum gæfu og góðs gengis.
Yfirlýsing Nýja Kaupþings:
Yfirlögfræðingur Nýja Kaupþings banka, Helgi Sigurðsson, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu frá og með deginum í dag, 30. júní 2009. Helgi segir ákvörðunina tekna í því skyni að skapa frið um bankann og enduruppbyggingu hans.
Töluvert hefur verið fjallað um aðkomu Helga Sigurðssonar að kaupréttarsamningum starfsmanna gamla Kaupþings. Nýja Kaupþing vill koma eftirfarandi á framfæri vegna þessa máls: Stjórn Nýja Kaupþings fór fram á lögfræðiálit frá tveimur utanaðkomandi lögfræðingum þeim,
Viðari Má Matthíassyni lagaprófessor og Herði Felix Harðarsyni hrl., til að meta lögmæti ákvörðunar gamla Kaupþings. Samkvæmt álitum þeirra hefur stjórn Nýja Kaupþings ekki heimild til að rifta ákvörðun stjórnar gamla bankans. Stjórn Nýja Kaupþings ætlar hins vegar ekki að afskrifa lán til starfsmanna vegna hlutabréfakaupa á meðan kæra hluthafa vegna lánanna er til meðferðar hjá sérstökum saksóknara.
Helgi Sigurðsson hefur ekki tekið þátt í störfum núverandi stjórnar þegar starfsmannalán hafa verið rædd og sat ekki fundi þar sem ákvarðanir um þau voru teknar. Stjórn og starfsfólk Nýja Kaupþings þakkar Helga Sigurðssyni vel unnin störf.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs