ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Hæstu innlánsvextirnir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:08 › 30. júní 2009
MP býður upp á  hæstu óverðtryggðu innlánsvextina.

MP býður upp á hæstu óverðtryggðu innlánsvextina. Mynd Heiða Helgadóttir

MP Banki býður upp á hæstu innlánsvextina á óverðtryggðum reikningum þegar fólk vill binda að minnsta kosti eina milljón krónur í eitt ár. Mikill munur er á vaxtakjörum eftir bönkum. Ingólfur H. Ingólfsson hjá Spara.is, ráðleggur fólki að geyma peninga ekki á debitkortareikningum, sem hafa mjög lága vexti. Verðtryggðir reikningar eru betri en óverðtryggðir ef spara á peninga til langtíma.

Hjá MP fæst 10,20 prósenta ársávöxtun á MP 12 reikningnum, miðað við að innlánið sé á bilinu ein til fimm milljónir króna. Innistæðan er bundin í eitt ár og er 1 prósent úttektargjald hjá gjaldkera.

Hjá Byr eru Net12 óverðtryggðu reikningarnir með 9,24 prósent ársávöxtun miðað við innistæðu á bilinu 1 til 10 milljónir króna. Vextir eru hins vegar borgaðir út 12 sinnum á ári og eru 8,87 prósent.
S24 er með þriðju vaxtahæstu sparnaðarreikninganna miðað við eina milljón í innistæðu og bindingu í 12 mánuði. Í 2. þrepi á sparnaðarreikningum sem miðast við 1 til 5 milljónir króna, fást 8,50 prósenta ársvextir.

„Ef það á eitthvað undir koddanum er lang best að geyma það inni á bankareikning eða ríkisskuldabréfum, það er eina sem hægt er að gera. Bestu kjörin færðu yfirleitt á netreikningum og þá er það einna helst líklega hjá S24 eða MP Banka. Svo er það ríkisskuldabréfin, ef menn eru sannfærðri um að ríkið sé ekki að fara á hausinn,“ segir Ingólfur H. Ingólfsson, ráðgjafi hjá spara.is. Hann segir að raunar sé lítið annað í boði en að nota þessar sparnaðarleiðir.

Nánar á neytendasíðu DV í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.