ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Gerir við skriðdreka

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:50 › 30. júní 2009
Ætli Skúli geti gert við skriðdreka sem þennan sem finnst á Balkanskaga?

Ætli Skúli geti gert við skriðdreka sem þennan sem finnst á Balkanskaga?

Sjómaðurinn Skúli Elíasson frá Þingeyri hefur opnað nýja viðgerðarþjónustu á Þingeyri. Sérhæfir hann sig í viðgerðum á skriðdrekum og fiðlum. Á vef Bæjarins besta kemur fram að Skúli geti gert við drekana og strengjahljóðfærin en hann sé sem stendur úti á sjó og verður ekki í landi fyrr en 10. júlí.

Skúli gerir einnig upp gömul skip og báta og hefur hann víst áður sagst tilbúinn til verka vanti Þjóðminjasafninu aðstoð við að gera báta í eigu safnsins upp.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.