ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Feitur maður í brjóstahaldara gerði usla

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:15 › 30. júní 2009
  • Maðurinn var í blúndubrjóstahaldara. Myndin er uppstillt.

    Maðurinn var í blúndubrjóstahaldara. Myndin er uppstillt.

Þéttvaxinn maður í blúndubrjóstahaldara og gallabuxum olli talsverðum usla í Holsted á Vestur-Jótlandi í Danmörku í dag. Hann stillti sér upp hjá salerni þar sem ferðalangar geta stoppað við ef þeim er mál og bauð gestum og gangandi munnmök.

35 ára manni frá Esbjerg blöskraði svo boðið að hann tilkynnti það lögreglu eins og segir á fréttavefnum bt.dk.

Að sögn lögreglunnar í Esbjerg er þéttvaxni maðurinn á aldursbilinu 35 til 40 ára og keyrði á grárri Mözdu. Lögreglan náði ekki tali af manninum í dag en myndi gjarnan vilja tala við hann. Lögreglan er enn í vafa um hvort athæfi hans sé ólöglegt.

Maðurinn í brjóstahaldaranum lofaði að koma aftur á sama stað á morgun og því ekki ólíklegt að lögreglan nái tali af honum þá.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.