ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Dæmdur fyrir hótanir og vopnalagabrot

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:58 › 30. júní 2009

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir, vopnalagabrot og brot gegn lögreglulögum. Maðurinn játaði sök en dómurinn er skilorðsbundinn til þriggja ára.

Maðurinn var dæmdur fyrir að hóta karlmanni en samkvæmt ákæru voru hótanirnar til þess fallnar að vekja ótta um líf og heilbrigði mannsins sem hótað var. Hann skrifaði bréf þar sem hann sagði meðal annars: „…Ef þér er annt um líf og heilsu kondu þér þá burt úr helluþorpi!“

Þá var hann dæmdur fyrir að hóta syni sínum að skjóta sama mann með fjárbyssu sem hann hafði meðferðis í bifreið sinni. Þá var hann ákærður fyrir að geyma skotvopn í hanskahólfi bifreiðarinnar og að hafa borið annað vopn á sér á almannafæri.

Maðurinn var einnig dæmdur fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu við verslun Olís á Hellu með þeim afleiðingum að lögregla þurfti að beita úðavopni gegn manninum. Manninum hafði ekki verið gerð refsing áður.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.