ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Alþingi samþykki ruglið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:16 › 30. júní 2009
  • Of miklu hefur verið lofað í IceSave-samningnum til að bakka út núna skrifar Jónas.

    Of miklu hefur verið lofað í IceSave-samningnum til að bakka út núna skrifar Jónas.

„IceSave málið er auðleyst“ er heiti færslu á bloggsíðu Jónasar Kristjánssonar, bloggara og fyrrum ritstjóra. Þar skrifar hann um að þjóðin geti ekki bakkað út úr IceSave-samningnum núna en býður upp á lausn deilunnar.

„Því miður er ekki hægt að vera andvígur IceSave samningnum til streitu. Of miklu hefur verið lofað til að hægt sé að bakka út. En þorri þjóðarinnar er andvígur. Lausnin felst í, að Alþingi samþykki ruglið með einum fyrirvara: Greiðslubyrði ábyrgðarinnar í vöxtum og afborgunum verði ekki meiri en tvö prósent af landsframleiðslu.

Fyrirvarinn snýst bara um greiðslugetu. Hún er það, sem flestir efast um, því að lausu endarnir eru hrikalegir. Með föstu þaki á greiðslur næst sanngirni í málið og þjóðin róast. Evrópusambandið og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn halda ró sinni. Hvort tveggja er nauðsynlegt.“

www.jonas.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.