ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Aftur á slysstað

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:36 › 30. júní 2009

Eins og flestum er kunnugt féll Duncan McKnight, söngvari bandarísku rokksveitarinnar The Virgin Tongues, niður þrjár hæðir á Skólavörðustígnum í byrjun maí síðastliðins og hefur hann verið í endurhæfingu á Grensási síðan að hann útskrifaðist af gjörgæsludeild tveimur vikum eftir slysið.

Á laugardaginn sást Duncan labba niður Skólavörðustíginn ásamt vinkonu sinni. Hann studdist við göngugrind og af útlitinu að dæma hefur hann náð miklulm bata á stuttum tíma. Duncan stoppaði fyrir framan húsið þar sem hann féll til jarðar og kíkti inn um stund en kom þó fljótlega út aftur. Hann settist síðan á bekk fyrir utan húsið, kveikti sér í sígarettu og naut sólarinnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.