ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Stjórnarmaður VR óttast byltingu, birtir tölvupósta

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:52 › 3. júní 2009
Skuggarnir hyggja á byltingu að mati stjórnarmanns.

Skuggarnir hyggja á byltingu að mati stjórnarmanns.

  • Ragnar Þór Ingólfsson.

    Ragnar Þór Ingólfsson.

Ragnar Þór Ingólfsson, nýkjörinn stjórnarmaður í VR, segir að núverandi stjórnarmenn og nokkrir starfsmenn VR séu tengdir inn í hóp af fólki sem kallar sig „Skuggar“ og hefur að sögn Ragnars það á stefnuskránni að grafa undan „nýja fólkinu“ í stjórninni. Á bloggi sínu birtir Ragnar Þór tölvupóstsamskipti Skugga-manna og lofar því að birta fleiri á komandi dögum.

„Það er grafalvarlegt ef núverandi stjórnarmenn og nokkrir starfsmenn séu að grafa undan vilja félagsmanna sem sýndu með svo afgerandi hætti að þeir vildu breytingar. Við nýja fólkið áttum greinilega ekki að fá tækifæri frá fyrsta degi, til að sanna okkur í starfi, hlýtur að gefa til kynna að þessir aðilar vinna gegn hagsmunum félagsins,“ skrifar Ragnar Þór á bloggsíðu sína í dag.

Hann segir fráfarandi stjórn hafa kosið að standa og falla með sínum formanni og hún hafi stutt hann fram í rauðan dauðan „þrátt fyrir gjörninga hans hjá lánanefnd kaupþings. Félagsmönnum blöskraði umburðarlyndið gagnvart slíkri fjárglæframennsku sem þar var viðhöfð og felldu dóm sem fráfarandi stjórn á afar erfitt með að sætta sig við,“ skrifar Ragnar.

Hann birtir síðan tölvupóst stjórnarmannsins og fyrrverandi varaformanns VR Stefaníu Magnúsdóttur daginn eftir að ný stjórn tók við. Þar talar hún um að „Skuggarnir“ hittist yfir kaffibolla og lagt verði á ráðin.

„Ég er líka með hugmynd um málefnahóp sem færi í þá vinnu að endurskoða lögin þannig að svona slys gerist aldrei aftur. Fyrst þurfum við að fá inn heilt og almennilegt trúnaðarráð en á næsta aðalfundi verður að breyta lögunum -- en þá verðum við búin að fá "okkar" fólk inn -- þótt það kosti aðrar allsherjarkosningar,“ segir í tölvupóstinum sem Ragnar Þór birtir á bloggi sínu og segir að sé frá Stefaníu.

Ragnar talar síðan um að bylting þessara aðila sé hafin. „Og er búið að boða til félagsfundar á fimmtudagskvöldið þar sem fyrsta atlagan að nýju fólki verður gerð,“ skrifar Ragnar að lokum. Hann lofar því síðan að birta fleiri tölvupósta í vikunni.

Bloggfærsla Ragnars: VR samsærið



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?