Poppstjarnan Michael Jackson fékk hjartaáfall fyrr í kvöld, og er nú látinn. Hann var fimmtugur að aldri. Lögreglan staðfesti við fjölmiðla nú fyrir stundu að hann hefði formlega verið úrskurðaður látinn.
Á meðan Jackson, sem hefði orðið 51 árs 29. ágúst næstkomandi, var fluttur með sjúkrabíl voru hafnar lífgunartilraunir á honum. Samkvæmt fréttavefnum TMZ.com tókst ekki að lífga hann við, en ekki hefur verið opinberlega staðfest að hann sé látinn. Hann var fluttur á sjúkrahús í Los Angeles en vaknaði ekki aftur.
Símtal þar sem tilkynnt var um hjartaáfallið barst neyðarlínunni 911 klukkan 19.21 að íslenskum tíma. Hann var ekki með lífsmarki, þar sem hann lá á heimili sínu í Holmby Hills. Það var starfsmaður Jacksons sem hringdi í neyðarlínuna.
„Hann er illa haldinn,“ sagði Joe Jackson, faðir Michaels, í samtali við tmz.com áður en hann lést. Hann lætur eftir sig þrjú börn: Michael Joseph Jackson, Jr., Paris Michael Katherine Jackson and Prince „Blanket“ Michael Jackson II.
Systir Michaels, Latoya Jackson, sást hlaupa grátandi inni á spítalanum eftir að henni var tilkynnt um skyndilegt fráfall hans.
Heimili Jacksons er í um sex mínútna fjarlægð frá spítalanum. Þar leigði hann sjö herbergja einbýlishús með 13 baðherbergjum, 12 örnum á tæplega 13 milljónir króna á mánuði, samkvæmt LA Times.
Jackson stefndi glæsilega endurkomu í sumar. Hann ætlaði að halda 50 tónleika í London frá 13. júlí næstkomandi, og áttu hverjir tónleikar að tákna eitt ár í lífi hans. Samkvæmt frétt á vefsíðu tónlistartímaritsins Rolling Stone fyrr í dag var þá þegar efast um að hann næði að klára tónleikaferðina. Uppselt var á alla tónleikana.





Um hvað ræðir FBI á leynilegum fundum? – Hlustaðu hér
Kynlíf í starfslýsingunni
Almennir borgarar dæma Breivik
Börn leggja á sig mörg þúsund kílómetra göngu í leit að betra lífi
Geyma lík í ræstikompum